Heim
Markmið safnsins
Ýmis farartæki
Mótorhjól

Flugvélar
Einkennis fatnaður
Myndir og skjöl
Vopnabúnaður
Heiðursmerki
Hjálmar og húfur
Ýmislegt annað
Tenglar



Endilega sendið póst ef það eru einhverja spurningar, eð ef þið hafið einhverjar upplýsingar um  þátt íslands í seinni heimstyrjöldinni.





Lt. Harry R. Stengle og Lt. James M. McNaulty við P-38 Lightning Orrustuflugvél. Þeir skutu niður Þýska Junkers Ju-88 könnunarflugvél, 24 apríl, 1943 sem var í njósnaflugi yfir Íslandi
 

 

 

 

 

Saga og söfnun minja frá Stríðsárunum á Íslandi

 

Velkomin á ww2.is.

Ég heiti Hinrik og er flugvirki að mennt og starfa á breiðþotum. Það eru tæp 20 ár síðan ég og vinur minn fórum í köfunarferð upp í Hvítanes sjóherstöðina upp í Hvalfirði. Winston Churchill sagði að Hvalfjörðurinn væri ein besta flotastöð sem til væri í heiminum, gerð af náttúrunnar hendi. Langur, mjór og djúpur með há fjöll beggja megin með loftvarnarbyssum gerði þetta tilvalin stað fyrir flotastöð fyrir skipalestarnar sem að komu hér við á leiðinni til Rússlands eða Englands.

Í ferð okkar fundum við bjórflöskur, kaffibolla, rommkúta, Brylocream hár krem krukkur og ýmislega aðra sniðuga hluti, fasta í leðjunni. Eftir að hafa hreinsað hlutina heima, datt mér í hug af hverju ekki að safna þessu eins og frímerkjum eða merktum pennum, sem var upphafið að söfnunar dellunni.

Ég byrjaði að kynna mér flugsöguna og fór að leita af flugvélarflökum til að reyna að finna athyglisverða hluti. Þetta varð að skemmtilegu áhugamáli. Ég fékk upplýsingar um nöfn á Amerískum flugmönnum 2 flugsveita sem að voru staðsettar á íslandi WWII. Með það byrjaði ég að leita af þessum mönnum með aðstoð internetsins. Ekki átti ég tölvu þá, og fannst kjánalegt að 2 félagar mínir væru alltaf á netinu (langt síðan J) Ég gerði ófáar ferðir á Borgarbókasafn til að komast í tölvuna þar. Ekki var möguleiki að finna mennina ef þeir voru með algeng nöfn. Síðan hringdi ég á línuna, og spurði eftir mönnunum. Með þessu tókst mér að hafa upp á hátt í 30 flugmönnum sem flestir tóku mér vel. Einn þeirra kom að heimsækja mig til Íslands og gaf mér A-2 flugmanna leðurjakkann sinn sem hann flaug í á Íslandi, WWII. Einnig fékk ég sent frá þeim fullt af ljósmyndum, skjölum og meira segja heiðursmerki.  Þetta var orðið miklu meira heldur en áhugamál, ég var búin að skuldbinda mig til að opna safn til heiðurs þessara gömlu heiðursmönnum. Þessi flugsögu áhugi dró mig síðan til að gera flugið að atvinnu, með að sækja um inngöngu í Spartan School of Aeronautics, eftir ábendingu frá góðum vin sem er einnig flugvirki.

Þetta er það sem ég hef verið að vinna að undanfarin ár. Safnið mitt er orðið mjög stórt, og er ég oft í geymslu vandræðum því að munirnir eru allt frá bindisnælum upp í hertrukka. Ég er stofnfélagi og í stjórn Flug og Söguseturs Reykjanes, sem er flug og hersögusafn í smíðum. Formaður er Alþingiskona, og aðrir í stjórn eru góðir menn og konur sem vinna hörðum höndum að varðveita sögulega muni og sögu.

Ef þið eigið í fórum ykkar einhverja muni frá seinni heimstyrjöldinni hafið þá endilega samband, þó ekki væri nema bara til að leyfa mér að skoða og taka myndir Ég get einnig veit aðstoð í að auðkenna og meta hluti. Einnig get ég veit einhverja aðstoð í sögulegum heimildum frá þessum tíma.

 

Takk fyrir. Hinrik

 


Hinrik Steinsson safnvörður.  email: hinrik@ww2.is